Skaðaminnkun með lögleiðingu kannabis

Á undanförnum árum hafa mörg ríki og landsvæði horfið frá bannstefnunni þegar kemur að kannabis. Má þar nefnda Úrúgvæ, Kanada og nokkur fylki Bandaríkjanna.

Stuðningsmenn breytinganna innihalda fólk á borð við Barrack Obama og Kofi Annan. Global Commission on Drug Policy hefur sagt að stríðið gegn eiturlyfjum hafi tapast og að það sé kominn tími fyrir alvöru skaðaminnkun, sem byggist á vísindalegri nálgun.

Hin harða vímuefnastefna hefur ekki haft þau forvarnaráhrif sem menn hafa vonast eftir en skapað þess í stað gríðarlegt öryggisvandamál. Fangelsi heimsins eru full af fólki sem ýmist framleiðir dóp, dreifir því, selur eða neytir. Enn fleiri komast í kast við lögin án þess að lenda í fangelsi, eru kannski handteknir eða sektaðir. Á Íslandi eru þetta yfir 1000 manns á ári.

Afglæpavæðing, án reglusetningar yrði framfaraskref. En ef framleiðsla og sala verða áfram ólögleg þá missum við tækifæri til að gera einmitt það sem máli skiptir: hafa eftirlit með framleiðslu, stýra aðgengi, vernda börn og ungmenni og skattleggja neysluna.

***

Ég hef lagt fram frumvarp sem felur í sér að reglur verði settar um framleiðslu, sölu og meðferð á kannabisefnum og neyslan leyfð.

Ég er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, sem er að byggt á handbókinni “How to Regulate Cannabis: A Practical Guide” á vegum Transform hugveitunnar.

Með mér á frumvarpinu er Sigrún Inibjörg frá Viðreisn ásamt tveimur þingmönnum Pírata, Gunnari Hrafni Jónssyni og Jóni Þóri Ólafssyni.

Meginpunktar frumvarpsins

  • Framleiðsla, sala og neysla leyfð.
  • Aldursmörk verða 20 ár.
  • Smásala heimil í sérstökum verslunum.
  • Veitingasala heimil í sérstökum kannabisveitingastöðum, sem t.d. mega ekki selja áfengi
  • Efnið selt í gráum umbúðum með einfaldri áletrun þar sem kemur fram nafn framleiðanda og vöruheiti og tegund vöru, nánari innihaldslýsing og viðvörun um skaðsemi
  • Algert auglýsingabann.
  • Kannabisgjald, áþekkt áfengisgjaldi. Upphæðin verður 2000kr. á hvert  gram af virka efninu THC. (Ef THC styrkleikinn er 15% þýðir það 300 kr. gjald á gramm).

***

Í ljósi liðinna atburða er líklegt að sú ásökun komi fram að um sé að ræða  einhvers konar upphlaup, tilraun til að dreifa athygli frá öðrum málum. Í því ljósi langar mig bara að skýra frá því að frumvarpið hefur verið í vinnslu frá desember síðastliðnum. Beðið var með framlagningu í vor og það unnið yfir sumartímann þar sem fólk úr Ungliðahreyfingu Viðreisnar kom meðal annars að.

Það stóð því alltaf til að leggja málið fram í þessari viku, að lokinni fyrstu umræðu um fjárlög. Þingflokkur Viðreisnar féllst á að veita því brautargengi svo það kæmist á dagskrá.

Ef ekkert hefði gerst hefði það því verið rætt í þingsal á þessu hausti og farið til umsagnar. Það gekk því miður ekki eftir, út af öðrum, þekktum ástæðum. En ég vona þó að frumvarpið brjóti ísinn, hefji umræðuna og verði til þess að við munum einhvern daginn hætta að refsa fólki fyrir að neyta þessara tilteknu efna.

3 thoughts on “Skaðaminnkun með lögleiðingu kannabis

  1. Hvernig væri að byrja á því að lesa sér aðeins til um efnið?
    http://www.medscape.com/viewarticle/839155_1

    Eins og þarna kemur fram selst bara marijuana sem er með háu hlutfalli af THC sem gefur vímuna. Læknisfræðileg áhrif eru afar lítil og á pari við aspirín gegn verkjum. Vissulega geta margir neytt efnisins án þess að ánetjast, en mariujana í dag er margfalt ríkara af THC en var á árum áður!

  2. þetta er æðislegt loksins eithver sem er með vit i hausnum sem situr á alþingi styð þessa tillögu . þá get ég loksins hætt að versla við glæpamenn og fengið lyfin min frá viður kendum aðila.

  3. Í alvöru, á þetta vera það fyrsta á dagskrá á alþingi á sama tíma þegar allt annað situr á hakanum? Hvað með bætt kjör fyrir öryrkja og aldraða, væri ekki nær að hafa það fyrst á forgangslistanum og eins málefni um heilbrygðiskerfið sem er í þvílíkum molum?

Leave a Reply to Magnfreð Ingi Jensson Cancel reply

Your email address will not be published.